Mér er svo óglatt
Leiðrétting
Takk. Ávallt þakklát.
Rua da Alegria
Númerid mitt í Portúgal er 00 351 91 265 9400. Besta og
hradvirkasta leidin til ad ná sambandi er ad senda mér sms. Hins
vegar var ég nógu mikill bjáni til ad kaupa mér símakort hjá
Vodafone í Lissabon - til ad klára thad bara af - en svo reynist
Vodafone ekki hafa útibú í Coimbra thannig ad ég er enn ad reyna ad
átta mig á thví hvernig ég á ad kaupa mér inneign naesta árid.
Thannig ad ég mun líklegast ekki svara smsunum, svona fyrsta kastid
Sá partur af heimilisfanginu sem ég er komin med er Rua da Alegria
99, Gledigata 99, sem Una sá fyrir sér sem hóruhúsagotu. Ég veit
ekki póstnúmerid og thad eru engin nofn eda neitt utan á húsinu. Ég
bryt heilann mjog mikid um thad hvernig fólkid í húsinu faer
Um leid og ég fae frekari upplysingar um heimilisfangid set ég
thaer hér inn, til ad allir geti sent mér pakka á tvítugsafmaelinu
Life skills, framhald
Ég er búin að vera að safna hári síðasta mánuðinn, ekki á hausnum
heldur löppunum, til að geta vaxað það fyrir brottför (einu minna
áhyggjuefni fyrstu vikurnar í ókunnu landi) og nú er ég orðin svo
hárprúð að það er orðið óþægilegt að vera í sokkabuxum. Ég veit að
þetta er ekki eitthvað sem ykkur langar að vita en tjái mig af
tómri illgirni. Ég get alveg lofað því að á Hellissandi var þetta
ekki truflandi, ég var orðin svo hirðulaus um útlit mitt að ég var
Mér er farin að þykja utanför mín hjákátleg tilraun til sjálfstæðis
og lærdóms eftir að ég rakst á blogg þeirra Önnu systur Sædísar og
Höllu og Obbu sem bjó einu sinni í götunni minni. Þær stunda nú nám
við háskóla í Amman og búa á jórdanskri heimavist. Ég lít nám
Hafdísar við Kaupmannahafnarháskóla einnig rómantískum augum, þar
gæti maður drukkið á Hvids Vinstue og látið sig detta niður stiga
(að vísu var mér bent á að mesti sjarminn væri farinn af þessum
námsdvölum í Köben eftir að farþegasiglingar milli landa lögðust
mestanpart af og við tóku helgarfrí heima með IcelandExpress). Að
Ég fór niður í Kvennó í dag að sækja stúdentsplaggið mitt á ensku
(ég fékk 9 í "life skills" ). Ég fann fyrir létti um leið og ég
steig aftur út úr skólanum og varð fyrir uppljómun í leiðinni, ég
fann orð yfir tilfinninguna sem fylgir utanförinni en er hvorki
tilhlökkun né kvíði: feginleiki. Ég er brjálæðislega fegin að vera
að fara. Svo fór ég í London og fékk mér pulsu að skilnaði. Það
síðasta sem ég geri áður en ég fer, það fyrsta sem ég geri þegar ég
Ég ætla að blogga aftur á morgun. Staðföst yfirlýsing. Nú ætla ég
að borða lambakjöt.
Svo fór þráin(n), út í bláinn...
vínberjum og camembert. Um mitt kvöld þurfti ég að skipta úr
pilsinu mínu og nýju hauskúpusokkabuxunum yfir í thaibuxurnar sem
gefa meira eftir, en með þeirri afsökun að það væri komið gat á
pilsið mitt. Samt hef ég gengið í mörg ár gengið í pilsum sem eru
eins og gatasigti án þess að hafa fyrir því að stoppa í
Ég fór út að borða með systur og ömmu, í árlegan
nautakjötskvöldverð sem er afmælisgjöf ömmu til okkar systra. Ég
fékk mína aðeins á undan í ár, en systir verður sweet sixteen í
vikunni. Amma keyrði á litla bílnum sínum – hún er svona ökumaður
sem Tinna myndi kalla tussu við fyrsta tækifæri, keyrir yfirleitt
alls staðar á þrjátíu og stoppar fimm metra frá ljósunum þegar það
er rautt. Ég skil hana ósköp vel, henni er bara ekkert vel við allt
þetta kraðak af bílum sem allir eru fullir af fólki með pirrað
augnaráð: helvítis gamalmenni. Ég er gamalmenni fyrir aldur fram,
hef verið það frá því ég var á leikskóla, og á auðvelt með að setja
Það er alltaf gaman að fara út að borða með ömmu, hún segir þúsund
sögur af samferðafólki sínu gegnum tíðina yfir matnum. Hún var
barnakennari áratugum saman, í sveit og borg, og hefur ótakmarkað
umburðarlyndi og skilning á breyskleika mannfólksins enda kann hún
endalausar sögur af splundruðum heimilum og illa förnum börnum.
Saga kvöldsins var af strák sem stamaði og var sendur í
sveitaskólann til ömmu og afa, öðlaðist þar sjálfstraust og vini og
endaði sem læknir í Amríku. Vafalaust gaf amma sér allt kredit í
sögunni en þó held ég að lítilmagninn hafi alltaf átt hjá henni
skjól, hvort sem það voru stamandi strákar eða óléttar stelpur sem
þorðu ekki heim og fengu að vera hjá henni á jólunum. Það er
eitthvað róandi við svona sögur af hnarreistri góðmennsku í miðri
samfélagssúpu af hörmulegum lífsreynslusögum um kynferðisofbeldi og
misþyrmingar, eitthvað sem fær mann til að halda í vonina. Amma er
Við komum heim og systir fór á límingunum þegar ég gaf henni
afmælisgjöfina sem ég hafði ekki getað staðist að kaupa fyrirfram;
kvikmyndina Magnús eftir Þráin Bertelsson á dvd. Slagorð
myndarinnar er: Lífsháski, framhjáhald, spenna, náttúruvernd og
ógleymanlegar persónur – óvenjuleg mynd um venjulegt fólk. Egill
Ólafs leikur lögfræðing sem fær sjúkdóm. Mynd frá 1989 sem hefur
Þráinn Bertelsson er margendurtekinn maður mánaðarins í
fjöllistahóp systur minnar, sem telur tvær unglingsstúlkur, næstum
því jafn dýrkaður og Benóný Ægisson sem þær hafa dáð síðan þær
fundu plötu hér uppi í risi með Kamarorghestum. Ástæðan fyrir
aðdáuninni á Þráni er mjög óljós en á sennilega rætur sínar í
snilldarmyndinni Jóni Oddi og Jóni Bjarna. Aðdáunin á Benóný er
aðallega tónlistarlegs eðlis og jókst um allan helming eftir að þær
uppgötvuðu að hann hafði spilað á saxófón í marga mánuði áður en
það kom í ljós að ofan í saxófóninum leyndist
Það saxast á dagana. Ég hlakka svolítið til og kvíði svolítið
fyrir, sérstaklega því að dröslast með farangurinn á Heathrow, en
aðallega hef ég komist að þeirri niðurstöðu að ég hefði aldrei
meikað það andlega að vera heima í vetur. Ég er búin að vera á
djamminu síðustu tvær nætur og ekkert sannfærir mann jafn mikið um
innihaldsleysi þess lífs sem maður lifir og ístöðulaust djamm.
Sjarmalaus flækingur milli staða þar sem hvergi er hægt að setjast,
fólk kemur og hverfur frá augunum á manni og maður hefur ekki einu
sinni eirð í sér til að drekka. Ég hef ekkert að sækja hingað
Mér líður svolítið eins og eftir að ég kom frá Laugarvatni, eins
og líf mitt sé ýmist búið eða ókomið. Þá duttum við Emma og Hlölli
í það heima hjá mér á menningarnótt, frestuðum því sífellt að fara
út í menninguna en drukkum því stífar, og drógum fyrir gluggann
þegar fyrstu blossar flugeldasýningarinnar lýstu upp kompuna niðri
Af hennar munni vil ég teyga sólskinið
tónlist í öllum búðum á Laugaveginum í dag. Þeir voru með Ellý í
KRON og Hauk í Ranimosk. Um daginn var Bob Dylan alls staðar. Það
er eins og þetta sé samstillt. Hins vegar fórum við mamma í
Kringluna í fyrrakvöld að kaupa garn og kakómalt og þar hrærðist
saman FM og Létt-drullan úr öllum búðum. Ég held að það versta hafi
verið í skóversluninni Focus, sem annars er fín búð, ógeðslegt lag
sem var stundum á FM þegar krakkarnir voru að ganga frá í salnum á
Hellissandi – Gasolina. Textinn er ,,gasolina, me encanta la
gasolina” endurtekið út í eitt undir einhverjum píkuskrækjum og
hjartatruflandi bassatakti. Mér er fyrirmunað að skilja hvernig
afgreiðslufólkið hélt að þetta hefði hvetjandi áhrif á
Reyndar er easy listening lyftutónlistin jafnvel verri. Hún
tröllreið einmitt öllu í salnum á Hellissandi á kvöldin. Þar var
til dágóður stafli af geisladiskum sem voru spilaðir yfir
kvöldmatnum – Richard Clayderman, Julio Iglesias og Jón Sigurðsson
Idolstjarna voru uppistaðan. Eini diskurinn sem hlustandi var á var
einhver gítardiskur með Eivöru Pálsdóttur. Þegar ég kom að borða
með familíunni bað ég stelpurnar að skipta um tónlist. Mér leið
svolítið eins og versta snobbara, en mér fannst það einfaldlega
niðurlægjandi fyrir þann góða mat sem Gunna hafði eldað að drekkja
honum í Our love með Jóni Sigurðssyni (,,the first cut is the
deepest...” svona fimm sinnum á sama kvöldinu). Hvernig hitt
starfsfólkið meikaði að bera fram mat heilt kvöld með þetta í
eyrunum veit ég ekki. Það er svo lítið mál að finna easy listening
djass eða eitthvað sem særir þó ekki hlustirnar á manni – bara
Ég er komin með nettengingu hérna heima og hafði því enga afsökun
fyrir að fresta því að fá mér einkabanka. Ég veit ekki af hverju
mér er svona illa við þetta fyrirbæri. Mér finnst bankar og
bankafólk hafa það eina hlutverk að gera mér erfitt fyrir. Ég vil
bara eiga peningana mína einhvers staðar, helst sem mest af þeim,
og geta nálgast þá á auðveldan hátt. Í staðinn er hringt í mig dag
og nótt að segja mér frá hagstæðum kjörum hinna og þessa banka, með
löngum orðum sem ég skil ekki og vinsamlegum tóni þess sem veit sig
gáfaðri. Þegar ég hætti mér niður í banka að sækja um svona
heimabanka eða spyrja hvort ég eigi að halda áfram að vera í
íslenskum banka eða skipta yfir í portúgalskan, þori ég varla að
koma með spurningar því óskiljanlegum svörunum fylgja jafnan
fyrirlitleg augnaráð á fávisku minni. Ég meina, fyrst þeim finnst
ég svona vitlaus, geta þau þá ekki bara talað við mig á mannamáli?
Ég bara þoli ekki peningamál. Ég vildi stundum að það væri enn
vöruskiptakerfi á Íslandi, ég myndi geta unnið mér inn kannski tólf
fiska og tvö brauð og svo skipti ég á því fyrir einhvern fallegan
kjól. Ég ætti bara vörugeymslu heima. Eða ennþá betra; skiptin færu
fram í rauðvínsflöskum. Þá kæmi aldur rauðvínsins í staðinn fyrir
vexti, því lengur sem ég ætti flöskurnar því verðmætari yrðu þær.
Og svo gæti maður líka drukkið verðmætin. Mér hefur alltaf fundist
það galli á peningum að geta ekki borðað þá. Reyndar á ég að
minnsta kosti tvo vini, báða hægri sinnaða, sem ég hef séð þefa af
Ég ætla að fá mannfræðinemann Önnu Völu til að redda mér einhverjum
huggulegum ættbálki í Papúa-Nýju Gíneu eða einhvers staðar þar sem
ég get tekið upp búsetu í samfélagi sem enn notar vöruskipti. Ég
Kúltúr!
nota hvern dag til að reyna að hitta sem mest af vinum og
ættingjum. Eða ætlaði að gera það. Hingað til hef ég aðallega verið
að drekka bjór með Bryndísi, hinum iðjuleysingjanum, meðan allir
ærlegir jafnaldrar okkar eru í skóla eða vinnu. Og lesa
minningargreinar. Ég hef áður undrað mig á því hér hversu mikla
holskeflu af andlátum haustið virðist hafa í för með
Og hahaha, hér er haust. Borgin ljómandi snotur í haustlitunum, sem
einfaldlega snjóaði yfir á Sandinum. Það var vitlaust veður og
ófært víða um land á mánudaginn, en við spóluðum af stað fyrir
hádegi með aðeins eina hugsun í kollinum: við gistum í Borgarnesi
ef við komumst ekki fyrir Hafnarfjallið. En héðan ætlum við burt.
Reyndar var Hafnarfjallið lamb að leika sér við og bíllinn svo
þungur af farangri að hann hélt sig alveg á réttum vegarhelming.
Eftir skyldubaðið við heimkomu rauk ég niður í bæ að kaupa mér ljóð
eftir Sylviu Plath – var að klára Glerhjálminn og fannst hún
ógeðslega mögnuð, þó ég væri ekki alveg sátt við þýðinguna
Ég sé fram á mergjað taugastríð um helgina, þegar ég þarf að ákveða
hvaða bækur, geisladiska og föt ég ætla að taka með mér. Ég hugga
mig við það að tölvan mín er full af tónlist og bókasafn háskólans
í Coimbra er mjög stórt. Annar tilfinningalegur viðskilnaður verður
nógu erfiður – á þriggja ára afmælinu sínu hætti síminn minn að
hlaða sig. Þriggja ára...hvernig væri það ef öll rafmagnstæki
entust svona lengi? Maður þyrfti að endurnýja allt á þriggja ára
fresti, brauðrist, hrærivél og handþeytara. Reyndar held ég að ég
noti símann minn töluvert meira en handþeytarann, og það er nú
tæplega sambærilegt hvort eð er. Mér tókst reyndar að eyðileggja
einn handþeytara á Hellissandi, hann var víst ætlaður fyrir rjóma
og ég reyndi að þeyta með honum hnausþykkt vöffludeig þangað til
Ég hlakka til að hætta að blogga við för mína út. Ég ætla að taka
upp bréfa- og emailsamskipti við allra nánustu vini og vandamenn
(Hafdís, nennirðu að senda mér heimilisfangið þitt?) í staðinn. Með
svona bloggi hlýtur maður alltaf að skapa sér ákveðna sjálfsmynd út
á við, sem ég held að sé að sumu leyti erfiðara að breyta en því
hvernig maður er í eigin persónu, og það getur verið niðurdrepandi
að lesa blogg þar sem maður hefur verið að tala út um rassgatið á
sér og birst lesendum sem óttalegur bjáni. Svona er maður nú fullur
hégóma. Málið er kannski að vera vandvirkari – ég er bara svo málóð
og alls ekki vandvirk í eðli mínu, hvað þá að ég hafi nokkurn
tímann hugsað áður en ég tala. Það er kannski næsta skref í
Allavega, til að ná að hitta sem flesta áður en ég fer þá er smölun
á Kúltúr á föstudagskvöldið. Þar ætla ég að minnsta kosti að vera á
standandi fylleríi. Ég sendi örugglega sms á línuna en ef ég gleymi
einhverjum þá eru allir vinir og góðkunningjar hvattir til að mæta
Klukk
Fimm athugasemdir við sjálfa mig
Ég hef verið klukkuð af Hildi. Ég hef fylgst með klukkununum ganga
blogga á milli undanfarna daga, svitnað af löngun og afbrýðisemi og
beðið eftir að verða klukkuð. Hildur hefur reynst vera tengill minn
við heiminn, staðfestingin á viðurkenningu hans á tilvist minni og
Í dag komst ég að því að ég kann alla texta á Falling into you með
Celine Dion. Ég var einn harðasti aðdáandi mrs. Dion um þrettán ára
aldur og var iðin við að útbreiða fagnaðarboðskapinn. Ég leit svo á
að það bæri vott um mikið tónlistarlegt dómgreindarleysi að pabbi
minn skyldi ekki viðurkenna augljósa hæfileika söngkonunnar. Á
hverjum degi þegar ég og Guðný vinkona mín vorum búnar í skólanum
fórum við heim til hennar, sem bjó við hliðina á Hagaskóla, klæddum
okkur úr risastóru dúnúlpunum okkar og fórum að drekka fjólublátt
Koolaid, spila Super Mario Bros og hlusta á Celine Dion. You were
Ég finn ekki jafnvægið milli þess að vera einfari og félagsvera.
Þegar ég var lítil stelpa dreymdi mig um að loka mig inni í litlu
herbergi og vera þar að eilífu. Ég ætlaði að eiga eins konar
örbylgjuofn sem maður gæti stimplað inn í hvað mann vantaði, hvort
sem það var einhver bók, bíómynd eða matur, og svo birtist það í
ofninum. Ég ætlaði aldrei að koma út úr herberginu aftur og við
tilhugsunina fann ég fyrir yndislegri öryggistilfinningu af því að
þá þyrfti ég aldrei að kljást við mannleg samskipti. Stundum
dreymir mig um þetta ennþá – samt finn ég fyrir óþreyju eftir
nokkra einmanalega daga og langar að halda risastórt partí fyrir
vini og ættingja og hella alla fulla. Og ég er svo svo mikið
Ég hef engan metnað fyrir neinu. Ég vil alltaf fara auðveldu
leiðina að hlutunum, sópa rykinu undir teppið og hafa það kósí.
Hingað til hef ég komist vel af þrátt fyrir þetta metnaðarleysi, og
komst að því í framhaldinu – fyrir svona þremur mánuðum – að
íslenskt skólakerfi er drasl. Ég vil bara eignast rauða skó, fá að
vera með fólkinu mínu og detta í það af og til. Aðrir þurfa sífellt
að skapa markmið fyrir mig og svo læt ég bara ýta mér út í hlutina.
Tengt þessu metnaðarleysi er algjört skoðanaleysi mitt. Mér stendur
Af og til, sérstaklega þegar ég les eitthvað sem ég hef skrifað,
finnst mér óbærilegt að vera ég. Ég skil ekki hvernig ég hef getað
lifað með mér hingað til. Nærvera sjálfrar mín og persónueinkenni
verða svo yfirþyrmandi að mig langar mest til að láta aðskilja sál
mína frá líkamanum og verða gangandi brosandi búkur eins og idjót
Ég kyssti stelpu í fyrsta sinn þegar ég var fimm eða sex ára, í
Kópavogi, alveg niðri við voginn, bak við skúr. Það var kakóbragð
af henni. Ég mundi ekki eftir þessu fyrr en ég var á rúntinum með
Tinnu og Hebba í fyrra og við villtumst á leiðinni heim frá því að
sækja pitsu á Domino´s í Kópavogi. Þessi skyndilega og mjög
gleðilega minning var mesta uppljómun sem ég hef orðið fyrir um
Hér á Hellissandi er snjórinn orðinn eins og óvinur í bíómynd sem
nálgast um leið og maður blikkar augunum. Fyrir nokkrum dögum var
kominn snjór í Helgrindurnar, en engin önnur fjöll. Í gær horfði ég
hrifin á kúkabrúnt Búrfellið bera við snjóhvít fjöllin fjær. Þegar
ég vaknaði í morgun og leit upp að jöklinum var allt hvítt. Eins og
Gunna sagði: Hér hefur verið haust í allt sumar og nú er kominn
vetur. Ég fer heim ekki á morgun, heldur hinn – mér er slétt
Sautján stig og sól
Ég skelf. Helsta ógleðitilfinningin er liðin hjá, en gamli góði
þynnkuskjálftinn er samur við sig. Reyndar skelf ég líka af kulda,
mér er búið að vera kalt í viku. Hér vinna konur á besta aldri,
þ.e. breytingaskeiðinu, sem eru sífellt í svitabaði og eru því
alltaf að skrúfa niður í ofnunum og opna gluggana svo allar
vistarverur starfsmanna verða eins og frystikista. Það er nefnilega
skítadrullukalt hér á Hellissand í augnablikinu, og brjálað rok. Í
gær fauk ég milli hótelsins og sjoppunnar og sjoppunnar og heimilis
míns og það var bara heppni að mér hafði nýlega verið gefin húfa og
fékk ekki eyrnabólgu í ofanálag. Kom heim og vafði mér inn í sæng
og lopapeysu og horfði á Spinal Tap sem Ásgeir lánaði mér – hún er
Í eymd minni og volæði hef ég verið á netflakki í morgun, lesið
blogg sem ég hef ekki lesið lengi, kommentað þar sem ég hef ekki
kommentað lengi og skoðað ársgamlar myndir úr Indlandsför Svövu.
Sem ég hef ekki séð mjög lengi. Þynnkunni fylgir í þetta sinn
einhver undarleg væmni svona í morgunsárið og ég sit hér og kvelst
yfir því hvað ég elska alls konar fólk mikið og hvað það er langt í
Ég er líka haldin sérkennilegri þráhyggju þessa dagana sem Hlölla
fannst sjúk en Bryndís skildi betur, enda sjálf á leiðinni burt. Ég
er orðin skíthrædd um að það deyi einhver á meðan ég er úti, og ég
muni þá bæði missa einhvern vin eða ættingja og þurfa að koma heim
í jarðarförina. Og ég er með það á heilanum hvaða jarðarfarir ég
myndi koma heim fyrir. Þegar amma og afi hringja tala ég við þau af
viðkvæmnislegri nærgætni og enda hvað eftir annað í hugleiðingum um
hvað ég þurfi nú að eyða miklum tíma með gömlu hjónunum þegar ég
kem í bæinn – maður veit jú aldrei hvenær kallið kemur (þau eru
reyndar öll við hestaheilsu og engin rökleg ástæða fyrir þessum
ótta). En eins og Hlölli benti mér réttilega á er sennilega best að
reyna að hemja þessa þráhyggju, enda myndi ég þá aldrei geta farið
neitt af ótta við að einhver hrykki upp af á meðan. Og væri alltaf
hangandi yfir fólki eins og pestin, til að eyða örugglega nógu
Annars er allt klappað og klárt fyrir útlandið. Ég er komin með
flug, meiraðsegja heim aftur því það var ódýrara, hótel í Lissabon
eina nótt, hótel í Coimbra fjórar nætur og staðfestingu frá
háskólanum. Það eina sem mig vantar er húsnæði fyrir veturinn og
hyggst nota vikuna sem ég hef áður en skólinn byrjar til að leita.
Gunnþóra er búin að kenna mér að segja ,,ég tala ekki portúgölsku,
má ég tala ensku?” og svo krossa ég bara fingur að svarið verði já
í sem flestum tilvikum. Ég er ekki viss um að hrognaspænskunni
verði neitt betur tekið. El revanchismo nacionalista alemán era una
Ég verð þó að viðurkenna að ég á eftir að sakna Emmu á ferðalagi
mínu. Mér finnst hálfóviðeigandi að fara í flug án þess að taka
hana með, og Ferðagögnin, en svo heitir plastmappan sem við geymdum
í vegabréfin okkar og miðana. Ferðagögnin eru ættargripur í
fjölskyldu Emmu og afar traustvekjandi. Það á líka eftir að vera
einmanalegt að fá sér hvítvín og rækjubrauð einsömul í Leifsstöð,
en þeirri hefð viðheld ég fram í rauðan dauðann. Síðast, þegar við
fórum til Barcelona, var ég að því komin að gubba við þetta
smáflöskuvín á fastandi maga klukkan hálfsex að morgni, en ég mun
Það er 14 stiga hiti og létt þoka í Coimbra. Spáin fyrir næstu fimm
daga hljóðar upp á hita á bilinu 25 til 31 gráða. Ég reyni að ylja
Vildi bara deila þessu með umheiminum
Thumbs up, Ásgeir, ég ætla að verða búin að giftast þér að minnsta
Afi þinn er rugludallur
deyja víst líka, og stundum er eins og þeir deyi bæði hraðar og
meira en annað fólk. Ég vissi ekki að Bessi Bjarnason væri dáinn
fyrr en ég sá minningargreinarnar í Mogganum í dag. Enn og aftur
einnar mínútu þögn í lobbíinu – það er óhugnanlegt hvað einnar
mínútu þagnirnar eru orðnar langvarandi – til að votta virðingu
þessari rödd sem ég rifja skýrar upp en raddir nákomnustu ættingja.
Ég tel niður dagana. Er búin að gera heillangan lista yfir það sem
ég þarf að gera á þessari einu viku í bænum, mestanpart ömurlega
leiðinlegt dót eins og að fara á milli banka og tryggingastofnana.
Ég hlakka samt til að fara í gegnum fötin mín og gefa í Rauða
krossinn. Lúmsk skipulagsárátta mín, sem fæsta myndi gruna ef þeir
sæju herbergið mitt, fær seðjandi útrás í svonalöguðu, sem og
Gunna kokkur tvinnar saman blótsyrðin þessa dagana því
matvælafyrirtæki keppast við að misskilja pantanirnar frá henni.
Nokkrum dögum fyrir lokun fær hún senda heila kassa af sjaldgæfum
kryddjurtum og fjölskyldupakkningar af lambafillet sem enginn hefur
pantað í allt sumar. Sjö bökunarkartöflur urðu að sjö pökkum af
lauk. Á sunnudaginn ætlum við að halda hlaðborð með yfirskriftinni
Restar 2005. Þar verður hægt að fá ýmislegt góðgæti á borð við
laukbökur, instant vanillubúðing og marineraða síld. Þessi
marineraða síld er það ógeðslegasta sem ég hef séð. Ég hef verið að
fylla á hana, setja hana fram á morgunverðarborð, ganga frá henni
og hella henni óvart yfir hendurnar á mér í mánuð og ég ætla aldrei
aldrei aldrei að borða þennan viðbjóð sem lyktar eins og rotið lík.
Ég átti frí í gærkvöldi og leigði mér Oldboy. DVD-diskurinn var
eitthvað bilaður og hoppaði alltaf áfram um senu þegar nokkrar
mínútur voru liðnar af þeirri fyrri. Það er til marks um
tillitssemi og þolinmæði mína sem nútímakvikmyndaáhorfanda að ég
hélt að þetta ætti að vera svona en var aðeins efins um aðferðina,
enda orðin kolrugluð í ríminu og algjörlega búin að tapa öllu sem
hefði getað verið söguþráður. Það var ekki fyrr en 112 mínútna
langri myndinni lauk eftir klukkutíma áhorf sem ég gerði mér grein
Ég er búin að vera svakalega geðvond síðan ég kom aftur en núna hef
ég ákveðið að taka Celiu Cruz á orðinu. La vida es un carnaval. Sex
Fyrrum Kópasker
Aldrei sést neinn á gangi. Aftur á móti er andlit í hverjum glugga,
bak við stórisa og rykugar pottaplöntur. Börnin fá bíl á sautján
ára afmælisdaginn sinn og eina merkið um líf utandyra (ef frá eru
taldir þeir ferðamenn sem slæðast í bæinn) er brummið í bifreiðum
íbúanna. Nei, ekki eina merkið, nokkur börn að leika sér á
sunnudögum og geltandi hundar. Það bergmálar meira að segja gelt
Andlitin í gluggunum hafa sérlega starandi augnaráð, sem verður
meira starandi eftir því sem maður er sérkennilegri. Úti að labba,
Ég man nokkur nöfn. Hellissandur, Grenivík, Búðardalur. Á Grenivík
stóð skólinn tómur en var verið að byggja við elliheimilið. Í
Búðardal er ekkert nema sina og skakkir snúrustaurar við grá
einbýlishús. Hvað ætli séu mörg svona þorp á landinu? Þar sem allt
umhverfi lyktar af vonleysi og menningarskorti nema á blíðustu
Ég stakk af í gær, þó það væri blíður góðviðrisdagur. Ég gat ekki
horft á eftir Hlölla keyra í bæinn og fá ekki far. Tæpur
sólarhringur í bænum er orðinn andleg frelsun – að sjá fólk á
götunum, fara í bókabúð, lesa blöðin á kaffihúsi. Meiraðsegja
skerandi þynnkan batnaði. Það er lýsandi fyrir þorpið hér að við
höfðum ekkert að gera á föstudaginn nema hrynja í það, sem við og
gerðum. Langvarandi áhrif frá fylleríinu eru kvef sem ég held ég sé
að fá eftir heldur kalsalega útiveru þá um kvöldið. Það var þegar
við vorum orðin það sótölvuð að við vorum farin að finna upp á alls
konar skemmtilegu til að gera utandyra í kolniðamyrkri og kulda um
Og nú er ég komin aftur. Vopnuð fjórum nýjum Simpsonþáttum og
Spinal Tap frá Ásgeiri. Þessi vika verður reyndar álíka annasöm og
Har du en snure?
Mér líður svo afskaplega vel. Ég vildi bara deila því með ykkur.
Gunna kokkur var svo yndisleg að senda mig heim um leið og
Þjóðverjahópurinn var farinn. Ég var víst augljóslega mjög andlega
þreytt, enda fór leiðsögumaðurinn þeirra alveg með mig af stressi.
Ég fór heim og svaf og fór í sturtu og las Fréttablaðið og nú
Ég var ekki fyrr komin inn úr dyrunum á hótelinu en pósturinn færði
mér sendingu frá pabba, nýjasta tölublað Tímarits Máls og
menningar. Það hafði í för með sér góða tilfinningu og svolítið
hraðari hjartslátt að sjá nafnið sitt og afurðir með þessari
kunnuglegu leturgerð í þessari kunnuglegu uppsetningu. Ég er ekki
búin að lesa neitt nema eigin ljóð og ætla að treina mér það
Hún er sæl sú vitneskja að það kemur ekki annar túristahópur fyrr
en á sunnudaginn. Reyndar verð ég í fríi þangað til, frá miðjum
degi á morgun, og þá ætlar Hlölli að koma og sötra með mér rauðvín
- ég á meira að segja osta og súkkulaðirúsínur þannig að þetta
verður afar dannað - og svo ætla ég að draga hann með mér inn í
Þessir tveir síðustu hópar eru ríkir Kanar, með töskuburði og
skringilegustu morgunverðaróskum, ýmist frekir eða óhemju indælir.
Mér líkar almennt ágætlega við bandaríska ferðamenn. Þeir eru
yfirleitt bara hressir og málglaðir um allan andskotann, þrátt
fyrir að hafa arfaslakan smekk á myndlist og póstkortum. Þýska
túrista á ég í ástarhaturssambandi við. Ungir Þjóðverjar eru
yfirhöfuð ljúfir og kurteisir en tilhneiging þeirra eldri að
afneita þeirri staðreynd að það talar ekki allur heimurinn þýsku
fer í taugarnar á mér. Guð hjálpi þeim hótelstarfsmanni sem verður
á að segja ,,ich sprache nicht deutsch" því það túlkar fólk sem
pottþétta staðfestingu á hinu gagnstæða. Ég hef setið undir
óteljandi tíu mínútna ræðum um hitt og þetta á þýsku í sumar, með
Leiðinlegasta fólkið sem ég hef hitt voru Portúgalir. Ég vona að
það hafi verið einstakt atvik. Hins vegar eru og verða danskir
eldri borgarar í sérstöku uppáhaldi. Eftir ferðamönnunum að dæma er
elsta kynslóð Dana einstaklega skapgott og þolinmótt fólk sem tekur
öllu sem upp kemur með stóískri ró og vinalegu brosi. Ég þjálfaðist
heilmikið í dönsku í sumar, sagði til um staðsetningu
sundlaugarinnar og verð á póstkortum, lánaði hleðslutæki og ræddi
tilgang lífsins og framtíðaráform mín. Einn hópur danskra
gamalmenna skellti manni við píanóið og djammaði fram á nótt, að
vísu við takmarkaða hrifningu næturvarðarins. Svona ætla ég að vera
þegar ég verð gömul.
Hver gæti mér orð þessi láð?
flýgur tíminn eins og venjulega. Ég hef lagt mig fram um að njóta
lista, útivistar og náttúruskoðunar, í samræmi við skapandi og
Hotel Rwanda (ég grét svo mikið að ég varð að hætta og horfa
á restina daginn eftir, samt hef ég ekki skælt yfir bíómynd
Mar adentro (ah, Javier Bardem, hugsaði ég, en nei, hann er
sköllóttur og rúmliggjandi svo til alla myndina…og hún er
Líf í skáldskap, samræður Ólafs Ragnarssonar og Halldórs
Laxness. Það tók mig mjööög langan tíma að komast í gegnum
Bréf til Láru. Það tók mig næstum því lengri tíma að komast í
gegnum hana. Ég skemmti mér mest yfir kaflanum um lifandi
Felidae eftir Akif Pirincci. Það er sakamálasaga um
tékkneskan kött. Hún var í miklu uppáhaldi hjá mér þegar ég
var þrettán, ég tók hana annan hvern mánuð á
Hringurinn um Snæfellsjökul. Svæðiskort gefið út af
Snæfellsbæ. Aftan á flennistóru korti af svæðinu undir Jökli
er löng úttekt í smáu letri á hverri einustu hundaþúfu. Hún
er svo snilldarlega skrifuð og af svo blygðunarlausri
hollustu við utanvert Snæfellsnes að kortið er það besta sem
ég hef lesið í sumar. Til dæmis er minnst á Kristófer nokkurn
Jónasson frá Arnarstapa ,,sem gert hefur garðinn frægan
erlendis í frjálsíþróttum öldunga”. Rithöfundar upprunnir á
svæðinu eru taldir samviskusamlega upp: til Sandara teljast
Steinar Sigurjónsson, Jóhann Hjálmarsson og séra Eðvarð
Ingólfsson en Þorgrímur Þráinsson á rætur sínar í
Með einmitt þetta kort að vopni hef ég þvælst af fremsta megni um
nágrenni þorpsins, til dæmis í dag í guðdómlegu haustveðri. Um
síðustu helgi kom familían í heimsókn á hinni stórskemmtilegu
uppfinningu átómóbíl, sjálfrennireið, svo að ég komst með þeim alla
leiðina á Hellnar og Arnarstapa, Djúpalónssand og Dritvík (sem sögð
er draga nafn sitt af því þegar skipverjar Bárðar Snæfellsáss skitu
út fyrir borðstokkinn og kúkinn rak á land í víkinni). Reyndar enda
einsamlar gönguferðir mínar yfirleitt að éta krækiber úti í móa.
Þegar gott er veður eins og í dag hef ég tilhneigingu til að vilja
hníga niður við hvert einasta lyng sem ég finn og hreyfa mig ekki
fet, sitja bara og tyggja krækiber og virða fyrir mér útsýnið, sem
Mig langar í berjamó eins og við fórum í vestur í Dölum hér í denn,
meðan afi hafði enn heilsu til að hlaða okkur öllum á kerruna og
keyra svo á hjartfólgna traktornum Gránu upp í brekkur sem ég man
ekki hvað heita og eru á landi afa míns. Mér fannst þær óravegu frá
húsinu þá. Þegar vikulangri berjatínslu lauk seint í ágúst var ekki
hægt að stíga inn í stóra forstofuherbergið í Árbæ, húsinu ömmu og
afa, fyrir dollum og dunkum smekkfullum af bláberjum. Þaðan er
máski komin sú sjúklega tilhneiging ömmu að safna alls konar
plastdollum og glerkrukkum – þegar þau fluttu fyrir nokkrum árum
máttum við versogúð drösla öllum dollunum og krukkunum sem amma
hafði pakkað samviskusamlega niður, niður af fjórðu hæð í blokkinni
í Hlíðunum og upp á sjöttu í blokkinni í Breiðholtinu. Sumir hefðu
Reyndar renna þessar berjatínsluferðir oft saman við ferðirnar sem
við fórum á áðurnefndri Gránu að sækja eldivið í reykhúsið hans afa
(myndir af mér átta ára með fléttur tvær, stórar framtennur og
birkilurk um öxl) og þær sem við fórum um móana með hrossabresti
til að fæla Miðgarðskindurnar út úr girðingunni. Í leiðinni tókst
yfirleitt að fæla Ástríði litlu systur mína, þá um þriggja ára, og
þurfti að fara með hana organdi inn í bæ. Hún vissi varla við hvað
hún var hræddust, kindurnar eða hrossabrestina. Ó, horfna æska. Ég
væri alveg til í að skreppa í Dalina aftur, það er langt síðan ég
En ég leggst ekki bara í gönguferðir og krækiberjaát, ég held
ótrauð áfram þeirri stefnu að hlusta á hvert einasta lag sem ég á
inni á tölvunni minni, en þau eru um 2300. Auðmjúkt lagasafn, en
nóg að gera. Í gær tók ég íslenska pakkann í þvottahúsinu, og
endaði á Frostrósum með Vilhjálmi Vilhjálms. Hann hefur ekkert í
Hauk Morthens. Það vantar allan melódramatískan þunga í
flutninginn, hann er bara mjóróma vælukjói. Ég var einnig ósátt við
að hann skyldi breyta ,,ó, þyrmd´onum, gefð´onum grið” í ,,ó,
þyrmd´enni, gefð´enni grið” – einhvern veginn held ég ekki að það
hafi verið af femínískri sannfæringu (víst geta konur verið
sjómenn). Haukur skammast sín ekki fyrir að bregða sér í hlutverk
harmi slegnar konu sem situr andvaka af söknuði og áhyggjum yfir
ástmanni sínum á sjónum. Mér finnst fjarri því jafn sannfærandi
myndin af Vilhjálmi að biðja fyrir einhverri stelpu á skipi. Ég
þoli ekki þegar söngvarar eyðileggja texta með óþarfa tilhliðrunum
á kynjum. Eins og þegar ég fór á tónleika með Ragnheiði Gröndal og
hún söng lagið Boy from Ipanema. Af hverju ekki að fara að dæmi
Astrud Gilberto og syngja einfaldlega um manninn í þriðju persónu
sem þráir stúlkuna frá Ipanema: ,,she looks straight ahead, not at
he”. Hver er þessi strákur frá Ipanema? Tall and tan and young and
lovely? Sways so gentle? Er þetta einhver brasilískur
Á föstudaginn fundum við systir upp nýjan leik í staðinn fyrir
skæri, steinn, blað. Hann heitir maður, jógúrt, gerill. Maðurinn
étur jógúrtið, jógúrtið er gerilsneytt og gerillinn étur manninn.
Hvorug okkar mundi nógu mikið úr líffræðinni til að átta okkur á
Ég er farin að fara svo svakalega úr hárum meðan ég sef. Það er
Ég er að niðurlotum komin. Þessi eini bjór sem ég hef sötrað meðan
ég skrifa hefur róandi áhrif þar sem þeirra var ekki þörf. Ég tími
samt varla að fara heim að sofa, vitandi að andartaki eftir að ég
líð út af þarf ég að vakna til annars þrettán tíma vinnudags, en
ætla að leyfa skynseminni að ráða. Les kannski nokkrar blaðsíður og
Universidade de Coimbra vaknar til lífsins
Please don't forget to send by mail the 100€ for the pre-enrolment
Nú er bara að redda bjútísjottinu og monníinu, and I´m off